Hálendismiðstöðin Hólaskjól

 

Hólaskjól er við Fjallabaksleið nyrðri, um 35 km frá þjóðvegi 1, þegar ekið er upp Skaftártungu. Yfir sumarið er vegurinn fær öllum bílum og engar óbrúaðar ár á leiðinni.

Frá Hólaskjóli eru um 6 km inn í Eldgjá, en skömmu áður en þangað er komið, þarf að fara yfir á sem er óbrúuð. Hún er oft ekki fær nema hærri bílum með drifi á öllum hjólum. 

Hólaskjól er við Lambskarðshóla, upp við hrauntungu sem rann þegar Eldgjá gaus, árin 934-940. Þar er friðsælt og umhverfi fagurt, t.d. er aðeins 5 mínútna gangur upp hrauntunguna að fallegum fossi í Syðri Ófæru, sem er ýmist kallaður Silfurfoss eða Litli Gullfoss.

Í Hólaskjóli er svefnpokapláss fyrir 69 gesti í tveggja hæða skála.

Þrjú bjálkahús eru einnig leigð út og geta allt að 6 manns gist í hverju þeirra í kojum. Hægt er að fá aukadýnur á gólf fyrir 2 í viðbót ef þörf krefur.

 

Einnig er tjaldstæði með salernisaðstöðu og sturtu.

Hestahópar eru velkomnir, góð aðstaða og heysala er á staðnum. 


Hægt er að senda inn Fyrirspurnir/Bókanir (Email/Booking)af síðu.

Einnig í síma/Phone:             8657432 Pétur Davíð Sigurðsson

Sími í húsi/Phone in house: 8555812

Sími í bíl/Phone in car:         8555813

Tölvupóstur/Email:               peturdsig@gmail.com

 

 


Nýjustu fréttir

  • Starfsmenn í Hólaskjóli 2010

    Pétur og Sirrý Björt

    Starfsmenn Hálendismiðstöðvarinnar Hólaskjóls sumarið 2010 eru Pétur og Sirrý Björt. Þau eru boðin velkomin til starfa.

    Our staff, Pétur and Sirrý Björt!


  • Engin aska frá Eyjafjallajökli. No volcanic ash.

    Tilbúið fyrir gesti!  Ready!

    Engin aska frá Eyjafjallajökli er í Hólaskjóli eða á hálendinu frá Vatnajökli og Skaftá, vestur að Tungnaá. Ferðamenn geta því notið þess að ferðast um þetta svæði eins og undanfarin ár.

    Og allir eru velkomnir í Hólaskjól!

    No volcanic ash from the Eyjafjallajökull eruption is in Hólaskjól or in the highlands from the glacier Vatnajökull and the river Skaftá, west to the river Tungnaá. Tourists can enjoy travelling the area as before.                          

    And everyone is welcome to Hólaskjól!

     


  • Verðskrá 2010 er komin á síðuna.


    Verðskrá fyrir þjónustu í Hólaskjóli er komin hér á síðuna og er undir hnappnum verðskrá.

Mynd augnabliksins

Fyrirspurnir / Bókanir

Heimsóknir

Í dag: 0
Samtals: 7811

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning