Veiðifélag Skaftártungumanna

Veiðifélag Skaftártungumanna á og rekur Hólaskjól-Hálendismiðstöð

Um okkur

Icetrek ehf er rekstraraðili Hólaskjóls og jafnframt leigutaki af veiðirétti í Langasjó. Icetrek ehf er með fullt starfsleyfiIcetrek ferðaskrifstofu og rekstrarleyfi til fólksflutninga . Auk þess að reka Hólaskjól Hálendismiðstöð sér Icetrek ehf um ferðir og stuðning við ferðahópa um svæði og selur veiðileyfi í Langasjó.

Veiðifélag Skaftártungumanna er eigandi Hólaskjól-Hálendismiðstöðvar. 
Félagið er stofnað um 1960. Eigendur þess eru öll lögbýli í Skaftártungu, 20 jarðir.
Veiðifélagið á og ráðstafar veiðirétti í öllum fjallavötnum á afrétti Skaftártungu, þ.e. á milli Tungnaár og Skaftár.

 

Hólaskjól var byggt í sjálfboðavinnu af Skaftártungumönnum, sem gangnamannahús um 1970.
Við sameiningu sveitarfélaganna austan Mýrdalssands árið 1990, varð það eign Skaftárhrepps.
Árið 2006 kaupir Veiðifélagið Hólaskjól af Skaftárhreppi og er það þá aftur komið í eigu þeirra jarða sem byggðu það.
Á haustin er aðalskálinn enn notaður þegar afrétturinn er smalaður af Skaftártungumönnum.

Vatnajökulsþjóðgarður er með landvörslustöð hér, en Hólaskjól er 4-5 km frá jaðri þjóðgarðsins.

Ferða- og gistiþjónusta er í Hólaskjóli frá byrjun júní fram í lok september hvert sumar. Utan þess tíma er einnig hægt að panta gistingu. 

Gönguskíðaland er hér frábært á veturna þegar snjór er nægur, fjölbreyttar leiðir, langar sem stuttar.

Vélsleðaferðir, hér er kjörið að hafa bækistöð þegar farið er í ferðir um hálendið og upp á Vatnajökul.

Icetrek ehf

kt:6308061780

VSK 91818

Banki: 0370-26-630800



Upplýsingar um Eldgjá og Hólaskjól hálendismiðstöð   Hólaskjól-Hálendismiðstöð
880 Kirkjubæjarklaustri 
Símanúmer  

S: +354 855 5812
S: +354 855 5813 

Netfang   holaskjol (at) holaskjol.com

Hvar erum við?

Hér er Hólaskjól hálendismiðstöð. EldgjáSmelltu hér eða á kortið til að sjá staðsetningu Hólaskjóls.

Ferðaupplýsingar

Hvernig á að komast í Eldgjá, Hálendismiðstöðina Hólaskjól   Vantar þig leiðbeiningar um hvernig þú átt að komast til okkar? Smelltu þá hér.